Veftré Print page English

World Economic Forum


Forseti á fund með fulltrúa World Economic Forum, Alþjóða efnahagsþingsins, um helstu verkefni WEF á næstu árum og hvernig reynsla og árangur Íslendinga á ýmsum sviðum getur verið framlag til stefnumótunar og umræðu. Í því sambandi var einkum fjallað um reynsluna af glímunni við fjármálakreppuna, nýtingu hreinnar orku, Norðurslóðir, verndun auðæva hafsins, fæðuöryggi sem og nýsköpun í tækni, hugbúnaði, hönnun og menningu.