Veftré Print page English

Sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands


Forseti á fund með sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands Darin King sem heimsækir Ísland til að kynna sér skipulag veiða og vinnslu. Rætt var um samstarf landanna á þessu sviði, uppbyggingu byggðarlaga sem byggjast á fiskveiðum og hvernig sjávarútvegur geti verið grundvöllur fyrir þróun hátæknigreina. Fundinn sat einnig sendiherra Kanada á Íslandi Alan Bones og fulltrúar íslenskra aðila með starfsemi í Kanada.