Veftré Print page English

Breskir þingmenn


Forseti tekur á móti hópi breskra þingmanna en þeir sinna sérstaklega tengslum við Ísland í breska þinginu. Rætt var um samskipti Breta og Íslendinga, bæði fyrr og á nýliðnum árum. Þingmennirnir voru ötulir málsvarar Íslands í kjölfar bankahrunsins og þakkaði forseti fyrir framlag þeirra. Einnig var rætt um sæstreng milli Íslands og Bretlands sem styrkt gæti orkubúskap Evrópu. Á fundinum var einnig Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.