Veftré Print page English

Sendiherra Póllands


Forseti á fund með sendiherra Póllands, hr. Stefan Czmur, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt um þá vináttu og stuðning sem Pólland sýndi Íslendingum í kjölfar bankahrunsins, mikilvægt framlag Pólverja sem búsettir eru á Íslandi til atvinnulífs, menningar og mannlífs í fjölda byggðarlaga. Þá var einnig rætt um efnahagslíf í Póllandi og horfurnar í þróun Evrópusambandsins.

 

Polland_sendih_2012