Veftré Print page English

Sendiherra Tékklands


Forseti á fund með sendiherra Tékklands, hr. Lubos Nový, sem senn lætur af störfum. Rætt var um góðan árangur að nýlegri opinberri heimsókn forseta Íslands til Tékklands, trausta vináttu landanna, ríkan áhuga á fjölgun tékkneskra ferðamanna enda voru mörg íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu með í heimsókninni. Einnig var fjallað um að auka samskipti á sviði menningar og lista, m.a. með útgáfu tékknesk-íslenskrar orðabókar.