Sendiherra Eistlands
Forseti á fund með sendiherra Eistlands, hr. Arti Hilpus, sem senn lætur af störfum. Rætt var um vaxandi samvinnu landanna, árangur af opinberri heimsókn forseta Eistlands til Íslands og þátttöku forseta Íslands í hátíðarhöldum í tilefni af sjálfstæði landsins.