Veftré Print page English

UMFÍ. Landsmót 50+


Forseti flytur ávarp við setningu Landsmóts 50+ sem UMFÍ heldur í Mosfellsbæ. Þetta er annað landsmót sinnar tegundar og er tilgangur þess að efla íþróttir og heilbrigt líf eldri aldursflokka. Í ávarpinu þakkaði forseti UMFÍ fyrir forystu þess í íþróttum og ungmennastarfi. Nú væri nýr þáttur að bætast við hin fjölþættu verkefni hreyfingarinnar. Nefndi hann einnig kynni sín af héraðsmótum vestur á fjörðum og af ýmsum forystumönnum ungmennahreyfingarinnar.