Startup Iceland
Forseti flytur ávarp við setningu alþjóðlegu ráðstefnunnar Startup Iceland sem haldin er í Keili. Þátttakendur eru frumkvöðlar og stjórnendur fyrirtækja, aðallega á sviði upplýsingatækni. Í ávarpinu rakti forseti ýmsa kosti Íslands sem þjónustumiðstöðvar á sviði nýsköpunar og í samstarfi frumkvöðla.