Veftré Print page English

Sendiherra Filippseyja


Forseti á fund með nýjum sendiherra Filippseyja, hr. Bayani S. Mercado, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um samstarf landanna á sviði jarðhita, m.a. til þurrkunar á matvælum. Einnig var fjallað um framlag filippeyska samfélagsins á Íslandi til aukinnar fjölbreytni í landinu með þátttöku á sviði menningar, atvinnulífs og velferðar. Þá var og rætt um þróun lýðræðis og stjórnmála á Filippseyjum og hið brýna verkefni að koma í veg fyrir vaxandi fólksfjölgun.

 

640pix__MG_9424 Filips