Sendiherra Pakistans
Forseti á fund með nýjum sendiherra Pakistans, hr. Syed Ishtiaq Hussain Andrabi, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um rannsóknir á jöklum og vatnabúskap á Himalajasvæðinu og hugsanlegt samstarf um nýtingu jarðhita í Pakistan, m.a. til að þurrka matvæli og stuðla þannig að auknu fæðuöryggi.