Veftré Print page English

Sjávarútvegsklasi


Forseti ræðir við fulltrúa frá Noregi, Kanada, Grænlandi, Færeyjum og Íslandi um samstarf fyrirtækja í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Samstarf þeirra innan svonefndra klasa hefur verið að eflast á undanförnum árum. Árangur fiskveiðiþjóða í Norður-Atlantshafi er merkilegur sem og hvernig fjölmörg tæknifyrirtæki og hugbúnaðarfyrirtæki hafa eflst í nábýli við sjávarútveg.