Landsbyggðarvinir. Verðlaun til grunnskóla
Forseti flytur ávarp og afhendir verðlaun þegar Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni, LBVRN, veittu nemendum fjögurra skóla verðlaun fyrir bestu lausnir verkefnisins "Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir". Grunnskóli Vesturbyggðar, Patreksskóli; Reykhólaskóli; Grunnskólinn á Raufarhöfn og Lækjarskóli í Hafnarfirði hlutu verðlaunin.