Veftré Print page English

Borgarstjóri Denver


Forseti tekur á móti borgarstjóra Denver, Michael B. Hancock, og fleiri embættismönnum borgarinnar ásamt stjórenndum Icelandair. Borgarstjórinn heimsækir Ísland í tilefni af nýrri áætlunarleið Icelandair til Denver. Í ávarpi fagnaði forseti gríðarlegri fjölgun bandarískra ferðamanna og að æ fleiri bein flug væru nú milli Íslands og Bandaríkjanna. Þá var rætt um hliðstæður Íslands og Coloradoríkis, fjöllin, náttúruna og skíðasvæðin ásamt áherslu bæði Denver og Colorado á aukna nýtingu hreinnar orku. Myndir.