Veftré Print page English

Borgarstjórn Þórshafnar


Forseti á fund með borgarfulltrúum Þórshafnar í Færeyjum þar sem rætt var um vaxandi samvinnu Íslands og Færeyja, breytingar á Norðurslóðum og aukinn áhuga ferðamanna á að heimsækja Ísland, Færeyjar og nágrannalönd. Einnig var rætt um breytingar í sjávarútvegi og hvaða áhrif þróun orkumála með nýjum sæstreng gæti haft á framtíð Íslands og Færeyja.