Veftré Print page English

Forseti Frakklands. Heillaóskir


Forseti sendir François Hollande, nýkjörnum forseta Frakklands, heillaóskir og kveðjur frá íslensku þjóðinni í tilefni af sögulegum sigri. Í kveðjunni áréttaði forseti að samvinna Íslendinga og Frakka ætti sér djúpar sögulegar rætur; frönsk menning, listir og vísindi hefði haft ríkuleg áhrif á íslenskan samtíma. Á vettvangi Evrópu og Atlantshafsbandalagsins hefðu löndin lengi átt farsælt samstarf og fjölmörg brýn verkefni blöstu við, svo sem á sviði loftslagsbreytinga og umbyltinga í þágu hreinnar orku. Fréttatilkynning.