Athafnamenn frá Bandaríkjunum
Forseti tekur á móti hópi athafnamanna frá Bandaríkjunum en þeir eru félagar í Entrepreneur Organization of Boston. Rætt var um nýsköpun í mörgum greinum íslensks atvinnulífs, hvernig nýjungar á sviði upplýsingatækni hafa sprottið upp á Íslandi og fjöldi fyrirtækja sem fyrir um 20 árum voru annaðhvort ekki til eða eingöngu bundin við Ísland láta nú að sér kveða á heimsmarkaði. Einnig var fjallað um nýtingu jarðhita á Íslandi og í Bandaríkjunum og ávinning af samvinnu íslenskra og erlendra frumkvöðla.