Veftré Print page English

Víetnam. Opinber heimsókn


Forseti á fund með sendiherra Víetnams á Íslandi,Vu Van Luu, sem flutti forseta boð forseta Víetnams og stjórnvalda um að koma í opinbera heimsókn til landsins til að treysta samvinnu Íslands og Víetnams m.a. á sviði sjávarútvegs, orkumála og annarra viðskipta. Tengsl Íslands og Víetnams væru einnig mikilvæg í ljósi aukinna samskipta Íslands og Kína við Kína og önnur lönd í Asíu. Einnig var vikið að samkomulagi milli Orka Energy og Sinopec, eins stærsta orkufyrirtækis Kína, um stórfelldar jarðhitaframkvæmdir en Haukur Harðarson, stjórnandi Orka Energy, stýrir starfsemi þess í Asíulöndum frá Víetnam.