Veftré Print page English

Afmælishátíð Verkfræðingafélagsins


Forseti sækir afmælishátíð Verkfræðingafélags Íslands þar sem heiðraðir voru frumkvöðlar og forystumenn á sviði tækni, verkfræði og vísinda. Í lok hátíðarinnar flutti forseti ávarp og þakkaði verkfræðingum fyrir framlag þeirra til að þróa og treysta nútíma samfélag á Íslandi. Jafnframt áréttaði forseti að þeir frumkvöðlar og forystumenn sem heiðraðir hefðu verið á samkomunni og þau fyrirtæki sem þeir hafa ýtt úr vör og eflt ættu að auka með þjóðinni bjartsýni um tækifæri á komandi árum.