Jarðhitaverkefni í Asíu
Forseti á fund með Hauki Harðarsyni, stjórnanda Orka Energy, um jarðhitaverkefni í Kína og öðrum löndum Asíu, samvinnu við Sinopec, eitt stærsta orkufyrirtæki heims sem jafnframt er í forystu í orkumálum Kína. Tækniþekking og reynsla Íslendinga í nýtingu jarðhita er forsenda slíkrar samvinnu en gríðarleg áform eru í mörgum löndum Asíu um framkvæmdir á þessu sviði.