Veftré Print page English

Íslandsglíman. Sveitaglíma unga fólksins


Forseti er heiðursgestur á Íslandsglímunni og Sveitaglímu Íslands yngri en 16 ára og grunnskólamóti Íslands sem fram fara í íþróttahúsinu á Ísafirði. Glímusamband Íslands og knattspyrnufélagið Hörður á Ísafirði standa fyrir mótinu. Um er að ræða fjölmennasta glímumót ungs fólks sem fram hefur farið. Á Íslandsglímunni er að venju keppt um Grettisbeltið og Freyjumenið. Forseti situr svo hátíðarkvöldverð sem haldinn er í húsakynnum Menntaskólans á Ísafirði.