Veftré Print page English

Sprotaþing


Forseti flytur ávarp í upphafi Seed Forum ráðstefnunnar. Þar fer fram kynning á nýsköpun og ýmsum sprotafyrirtækjum og umfjöllun um margvíslegan stuðning við þá sem vilja þróa nýjar hugmyndir og tækni. Í ávarpi sínu rakti forseti fjölmörg dæmi um vöxt íslenskra nýsköpunarfyrirtækja og þá lærdóma sem draga má af ferli þeirra. Nýsköpun væri nú þegar helsti drifkrafturinn í hagkerfi 21. aldarinnar og samkeppnishæfni þjóða myndi ráðast einkum af því hve vel væri að henni búið. Vefsíða sprotaþingsins.