Veftré Print page English

Afhending Útflutningsverðlauna


Forseti afhendir Útflutningsverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þau hlaut að þessu sinni fyrirtækið Trefjar í Hafnarfirði sem flutt hefur út sérstaka gerð fiskibáta og annarra báta til margra landa. Sérstaka viðurkenningu hlaut Ragnar Axelsson, RAX ljósmyndari, sem einstaklingur sem þykir með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og þannig stuðlað að jákvæðu umtali um land og þjóð. Við athöfnina fluttu forseti og Friðrik Pálsson, formaður stjórnar Íslandsstofu, ávörp.