Veftré Print page English

Útflutningsverðlaun og heiðursviðurkenning


Útflutningsverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag kl. 16:00. Einnig verður afhent sérstök heiðursviðurkenning til einstaklings sem aukið hefur hróður Íslands á erlendri grundu.

Friðrik Pálsson formaður úthlutunarnefndar tilkynnir hvaða fyrirtæki hlýtur verðlaunin og forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir þau. Þá verður afhjúpað listaverk sem verðlaununum fylgir. Höfundur verksins er Tinna Gunnarsdóttir listarmaður og hönnuður. Forseti Íslands afhendir einnig heiðursviðurkenningu til einstaklings.

Í dómnefnd vegna verðlaunanna sátu að þessu sinni Björgólfur Jóhannsson frá Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins, Ingjaldur Hannibalsson frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Friðrik Pálsson frá Íslandsstofu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Örnólfur Thorsson frá embætti forseta Íslands.