Veftré Print page English

Ráðstefna í Boston um Norðurslóðir


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur í dag, mánudaginn 26. mars, lokaræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um framtíð Norðurslóða sem haldin er af Fletcher School við Tufts háskólann í Boston. Ræða forseta ber heitið „The Arctic: A New Model for Global Cooperation“. Upphafsræðu ráðstefnunnar flutti í gær John Kerry, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings og forsetaframbjóðandi demókrata árið 2004. Þátttakendur í ráðstefnunni eru sérfræðingar og áhrifamenn í málefnum Norðurslóða, svo og prófessorar og nemendur við Tufts háskólann.


Á ráðstefnunni er fjallað um hvernig haga beri nýtingu auðlinda á Norðurslóðum, umhverfisvernd og þróun frekari samvinnu.  Einnig er rætt um áhrif Norðurslóða á heimsvísu, hvaða lærdóma megi draga af reynslu síðustu ára og hvernig bregðast eigi við aukinni sókn ríkja frá öðrum heimshlutum, frá t.d. Asíu og Evrópu, í aðgang að Norðurslóðum og auðlindum þeirra.

Í ræðu sinni mun forseti fjalla um samstarfsformið sem fest hefur verið í sessi á Norðurslóðum, þátt almannasamtaka, frumbyggja og vísindasamfélags í stefnumótun, árangur af opnari vinnubrögðum en tíðkast hafa á öðrum sviðum alþjóðamála og aðhaldið sem áherslur á lýðræði og vísindarannsóknir skapa stefnumótuninni. Þá mun forseti reifa hvernig það samstarfsform sem ríkin á Norðurslóðum hafa mótað á síðastliðnum 10-15 árum getur nýst í öðrum heimshlutum.


John Kerry áréttaði í ræðu sinni í gær að Bandaríkin yrðu að gera sig mun meira gildandi í málefnum Norðurslóða. Það skipti miklu máli í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og gæti eflt vitund almennings um hvað væri í húfi. Hann rakti niðurstöður ýmissa nýrra vísindarannsókna sem sýna að aðeins fáein ár eru til stefnu ef mannkyni á að takast að koma í veg fyrir hrikalegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Það væri stærsta verkefni samtímans. Fréttatilkynning. Myndir. Ávarp forseta.