Sendiherra Georgíu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Georgíu, hr. Nikoloz Rtveliashviti, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um breytingar í orkukerfi Georgíu en bæði Landsvirkjun og Verkís hafa tekið þátt í hönnun og byggingu smárra vatnsaflsvirkjana þar í landi. Þá var einnig rætt um möguleika í ferðaþjónustu sem og um deilur Rússa og Georgíumanna.