Veftré Print page English

Þurrkun matvæla. Laugafiskur


Forseti heimsækir Laugafisk á Akranesi og fræðist um þurrkun sjávarafurða. Fyrirtækið hefur um árabil notað jarðhita til að þurrka þorskhausa og aðrar sjávarafurðir sem áður fyrr var hent. Þær eru síðan fluttar út til Nígeríu. Heimsóknin er liður í athugun á nýtingu jarðhita til að styrkja matvælaframleiðslu víða um heim.