Veftré Print page English

Stjórnunarverðlaun


Forseti afhendir stjórnunarverðlaun Stjórnvísi fyrir árið 2012. Rúmlega 70 stjórnendur í fjölmörgum fyrirtækjum voru tilnefndir til verðlaunanna fyrir framlag þeirra og árangur í starfi. Verðlaunin eru veitt af Stjórnvísi, félagi um framsækna stjórnun. Forseti flutti einnig ávarp þar sem hann ræddi um nauðsyn þess að vekja athygli á árangri fyrirtækja í ólíkum greinum og hamla gegn hinni neikvæðu umræðu sem um of setti svip sinn á íslenskt atvinnulíf og sendi röng skilaboð til ungra kynslóða. Vefur Stjórnvísi.