Veftré Print page English

Þjóðþing Möltu


Forseti á fund með Michael Frendo, forseta Þjóðþings Möltu, og sendinefnd þingsins sem heimsækir Ísland í boði Alþingis. Rætt var um aukið samstarf smárra ríkja í Evrópu og sameiginlega hagsmuni eyríkja. Einnig var fjallað um árangur Íslendinga í nýtingu hreinnar orku, mikilvægi alþjóðlegs samstarfs um verndun hafanna sem og tengsl milli háskóla landanna og viðskiptalífs.