Food and Fun
Forseti tekur á móti hópi erlendra matreiðslumeistara og blaðamanna sem sækja matarhátíðina Food and Fun og skipuleggjendum hátíðarinnar. Hún hefur orðið mikilvægur þáttur í kynningu á íslenskri matargerð og til eflingar ferðaþjónustunni. Í móttökunni voru bornir fram ýmsir réttir frá ólíkum landshlutum, sumir byggðir á aldagömlum hefðum og allir gerðir úr hráefnum sem byggjast á hreinleika náttúru Íslands.