Veftré Print page English

Sendiherra Marokkós


Forseti á fund með nýjum sendiherra Marokkós, frú Saadia El Alaoui, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu á sviði sjávarútvegs, m.a. í ljósi athugana og undirbúnings sem fram fór fyrir nokkrum árum og einnig í krafti áhuga íslenskra aðila á að leggja lið aukinni nýtingu sjávarafurða í Marokkó. Einnig var fjallað um lýðræðisþróunina í Arabaheiminum, breytingar á stjórnarskrá Marokkós og reynsluna af fjölflokka lýðræði.

 

640pix_Marokkó