Veftré Print page English

Sendiherra Ungverjalands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ungverjalands, hr. Géza Jeszenszky, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi samvinnu landanna á sviði jarðhitanýtingar en Íslendingar vinna nú að uppbyggingu hitaveitu í Ungverjalandi. Einnig var fjallað um þá lærdóma sem draga má af fjármálakreppunni og hvernig Ísland hefur brugðist við henni sem og þróun mála í Ungverjalandi og samskipti þess við önnur aðildarríki Evrópusambandsins.

 

ungverjaland_660px