Heiðursverðlaun Eddunnar
Forseti afhendir heiðursverðlaun Eddunnar á Edduhátíðinni. Verðlaunin hlaut Vilhjálmur Knudsen fyrir gerð heimildamynda, einkum um íslenska náttúru sem og kynningu á eldgosum og hamförum náttúrunnar með sýningum kvikmynda fyrir erlenda ferðamenn.