Veftré Print page English

Klúbbur matreiðslumeistara. 40 ára


Forseti sækir afmælishóf Klúbbs matreiðslumeistara í tilefni af 40 ára afmæli hans. Í ávarpi þakkaði forseti félögum klúbbsins fyrir framlag þeirra til að auka fjölbreytni íslenskrar matarmenningar, renna nýjum stoðum undir öflugan vöxt ferðaþjónustunnar og gera þjóðlífið fjölbreyttara. Með kunnáttu sinni hafi matreiðslumenn fléttað saman íslenskar hefðir, erlend áhrif og gæði íslensks hráefnis svo að maturinn sé nú, ásamt náttúru og menningu, það sem erlendir ferðamenn telja mikilvægast í heimsóknum til landsins.