Veftré Print page English

Sprotafyrirtæki. Ráðstefna


Forseti á fund með Bala Kamallakharan um ráðstefnuna "Building Sustainable Startups - Entrepreneurial Ecosystem" sem halda á á Íslandi í maí. Markmið hennar er að efla nýsköpun og styrkja sprotafyrirtæki á ýmsum sviðum. Meðal þátttakenda verða þekktir erlendir athafnamenn og hugsuðir á þessu sviði. Einnig var á fundinum fjallað um vaxandi samstarf Íslands og Indlands, m.a. í ferðaþjónustu.