Veftré Print page English

Rótarýklúbburinn Görðum


Forseti tekur á móti félögum í Rótarýklúbbnum Görðum sem starfað hefur í 45 ár. Íbúar í nágrenni Bessastaða, Álftanesi og Garðabæ, eru félagar í klúbbnum. Forseti ræddi um sögu Bessastaða, Bessastaðaskóla, fornminjar á staðnum, gjafir frá ýmsum heimshlutum og byggðarlögum á Íslandi sem og annað sem tengist sögu og búnaði staðarins. Forseti Rótarýklúbbsins, Guðbjörg Alfreðsdóttir, rifjaði í ávarpi upp tengsl klúbbsins við fyrri forseta.