Veftré Print page English

Heillaóskir til nýkjörins forseta Finnlands


Forseti sendir nýkjörnum forseta Finnlands, Sauli Niinistö, hamingjuóskir frá íslensku þjóðinni. Í kveðju sinni minnti forseti á trausta og langvarandi vináttu Finna og Íslendinga, þjóða sem báðar tilheyrðu hinni norrænu fjölskyldu. Forseti benti jafnframt á að málefni Norðurslóða væru sameiginlegt hugðarefni þjóðanna sem hafa mundi sívaxandi þýðingu á komandi áratugum. Fréttatilkynning.