Veftré Print page English

Þingforseti Svartfjallalands


Forseti á fund með forseta þjóðþings Svartfjallalands, Ranko Krivokapic, og sendinefnd þjóðþingsins sem heimsækir Ísland í boði Alþingis. Rætt var um stöðu smárra ríkja í Evrópu, breytingar við endalok kalda stríðsins, samskipti ríkjanna á Balkanskaga og hvaða lærdóma má draga af þróun Íslands frá heimastjórn til lýðveldis, frá fátækt til lífskjara nútímans.