Ráðhús Kaupmannahafnar
Forseti er viðstaddur samkomu í Ráðhúsi Kaupmannahafnar í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning Danmerkur. Fjöldi kóra söng og þar á meðal kvennakór Íslendinga í Kaupmannahöfn. Að samkomunni lokinni bauð borgarstjóri Kaupmannahafnar til hádegisverðar.