Rannsóknir á bráðnun jökla
Forseti á fund með Dagfinni Sveinbjörnssyni um framhald samstarfs um rannsóknir á bráðnun jökla, bæði á Himalajasvæðinu og Norðurslóðum. Á síðasta ári voru haldin á Íslandi tvö alþjóðleg rannsóknarþing um þessi efni sem sótt voru af sérfræðingum víða að úr veröldinni.