Veftré Print page English

Samfélagsstyrkir Samherja


Forseti tekur þátt í athöfn í KA-heimilinu á Akureyri þar sem afhentir voru samfélagsstyrkir Samherja hf. Alls nam upphæðin 75.000.000 króna og voru þeir veittir til íþróttafélaga, æskulýðsstarfs og annarra samfélagslegra verkefna. Þá var einnig tilkynnt um styrk til rannsókna á hverastrýtunum á botni Eyjafjarðar en forseti er verndari þess verkefnis. Mikill fjöldi starfsmanna Samherja, sjómenn og fiskvinnslufólk sótti athöfnina.