Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til Filippseyja


Forseti sendir samúðarkveðjur til Benigno S. Aquino, forseta Filippseyja, vegna fellibyls og flóða á sunnanverðum eyjunum sem kostað hafa hundruð mannslífa. Í kveðjunni sagði forseti að Íslendingar fyndu sárt til með íbúum Filippseyja og væri hugur okkar hjá þeim sem misst hefðu ástvini sem og hjá björgunarsveitarmönnum. Á Íslandi eigi margir vini og ættingja á Filippseyjum og þau tengsl efli samúð okkar enn frekar. Fréttatilkynning.