Veftré Print page English

Umhverfisráðstefna í Abu Dhabi


Forseti tekur þátt í megindagskrá umhverfisráðstefnunnar Eye on Earth sem haldin er í Abu Dhabi en markmið hennar er að efla þróun upplýsingakerfa sem auka möguleika á því að fylgjast nákvæmlega með sjálfbærnistigi borga og samfélaga. Meðal ræðumanna var Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, en Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna er einnig aðili að ráðstefnunni. Í tengslum við hana var opnuð sýning á upplýsingatækni í þágu sjálfbærni. Myndir.