Fiskverkun KG á Rifi
Forseti heimsækir Fiskverkun KG á Rifi en hún sérhæfir sig í saltfiskvinnslu fyrir Spánarmarkað. Nýtt húsnæði var tekið í notkun fyrir fjórum árum og vinna þar rúmlega 20 starfsmenn við framleiðslu á hágæða saltfiski. Rætt var um stöðu fiskvinnslufyrirtækja og betri afkomu þeirra á síðari árum. Myndir.