Veftré Print page English

Friðarþing Skáta


Forseti á fund með Braga Björnssyni skátahöfðingja og Hermanni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra BÍS, um friðarþing sem Skátahreyfingin áformar að halda í Reykjavík haustið 2012. Þingið munu sækja skátar víða að úr veröldinni. Það er haldið í tengslum við 100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi. Forseti verður verndari þingsins.