Veftré Print page English

Icelandair í Bandaríkjunum


Forseti tekur á móti hópi starfsmanna Icelandair í Bandaríkjunum sem unnið hafa að því að auka fjölda ferðamanna til Íslands, m.a. í tengslum við nýlega herferð í þágu vetrarferðamennsku. Gríðarleg fjölgun hefur orðið á bandarískum ferðamönnum til Íslands og eru góðar horfur á að hún muni halda áfram á næsta ári. Rætt var um hvað einkum höfðar til ferðamanna í slíkum heimsóknum til Íslands.