Veftré Print page English

Kerecis


Forseti heimsækir nýsköpunarfyrirtækið Kerecis á Ísafirði sem sérhæfir sig í lækningavörum úr fiskroði. Það hefur m.a. þróað græðslugrisjur fyrir sár og fótakrem. Ómega efni í fiskroðinu búa yfir eiginleikum sem annað hráefni hefur ekki og eru því miklar vonir bundnar við þessa nýsköpun í heilbrigðistækni. Fer vel á því að þessi nýja starfsemi sé í gömlum húsakynnum Íshúsfélags Ísfirðinga. Myndir.