Veftré Print page English

Grasrótarmiðstöðin


Forseti heimsækir Grasrótarmiðstöðina þar sem fulltrúar ýmissa samtaka og málefnahópa kynna sjónarmið sín og starfsemi. Í stuttu ávarpi áréttaði forseti mikilvægi þess að efla grasrótarstarf. Í því fælist lífsmark lýðræðisins. Nútíma upplýsingatækni skapaði  nýja möguleika til að hafa áhrif.