Veftré Print page English

Íslensku markaðsverðlaunin


Forseti afhendir Íslensku markaðsverðlaunin sem veitt eru af ÍMARK. Markaðsmaður ársins er Jón Ásbergsson. Markaðsfyrirtæki ársins er Icelandair en auk þess voru Nova og Össur tilnefnd til verðlaunanna. Forseti flutti stutt ávarp þar sem hann áréttaði að árangur þessara þriggja fyrirtækja sýndi tækifærin sem búa í íslensku atvinnulífi. Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika hefðu undanfarin ár verið þau bestu í sögu þessara þriggja fyrirtækja. Mikilvægt væri að kynna ungu fólki slíkan árangur til að efla bjartsýni þess og trú á framtíð Íslands.