Veftré Print page English

Sendiherra Frakklands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Frakklands, Marc Bouteiller, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um traust samband landanna, langvarandi samvinnu á sviði menningar og mennta og ný verkefni sem tengjast vísindum, nýtingu hreinnar orku og Norðurslóðum. Að því loknu var móttaka fyrir fulltrúa ýmissa samtaka og stofnana sem hafa náin tengsl við Frakkland. Mynd.