Set
Forseti heimsækir iðnfyrirtækið Set á Selfossi sem framleiðir lagnapípur og rör m.a. fyrir hitaveitur, kalt vatn og fráveitur. Fyrirtækið hefur eflt útflutning sinn á undanförnum árum og býr nú að fjölþættri starfsemi. Heimsóknin var í tengslum við nýsköpunarátak Samtaka iðnaðarins. Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri og aðrir fulltrúar fyrirtækisins kynntu forseta starfsemina. Myndir.